Ólöglegur leikmaður með Gróttu
Í samræmi við greinar 9.1 og 11. 2 í reglugerð KSÍ um Deildarbikarkeppni karla hefur skrifstofa KSÍ staðfest að Sturlaugur Haraldsson lék ólöglegur með Gróttu gegn ÍR í Lengjubikar karla, þann 4. mars síðastliðinn. Leikmaðurinn er skráður í Hamar.
Í samræmi við ofangreindar reglugerðir eru úrslit leiksins skráð 3 - 0 og Grótta er sektað um kr. 30.000.