Málþing um hagræðingu úrslita - Frestað vegna ófærðar
Vegna eftirspurnar verður boðið upp á fjarfund fyrir þá sem eiga um langan veg að fara á málþingið um hagræðingu úrslita, miðvikudaginn 6. mars.
Hægt er tengjast fundinum með því að fara inn á slóðina https://fundur.thekking.is/startcenter/ hálftíma áður en fundur hefst.
Kl. 11.30 á fundardegi verður ykkur sent lykilorð í tölvupósti sem þið setjið í "Join session" og skrifið nafnið ykkar í línuna fyrir neðan.
Að lokum veljið þið "Join now".
Þá ættuð þið að hafa tengst fundinum sem hefst kl. 12:00 og er áætlað að hann verði til 14:00.
Nauðsynlegt er að skrá sig á phs@getspa.is og senda nafn og netfang með skráningunni. Lykilorðið verður sent til ykkar með tölvupósti hálftíma áður en fundur hefst og einnig birt hér á heimasíðunni.
Þeir sem ætla að mæta á málþingið sjálft í höfuðstöðvum KSÍ eru beðnir um að skrá sig á phs@getspa.is í síðasta lagi þriðjudaginn 5. mars.