Ólöglegir leikmenn með BÍ/Bolungarvík
Í samræmi við greinar 9.1 og 11. 2 í reglugerð KSÍ um Deildarbikarkeppni karla hefur skrifstofa KSÍ staðfest að þeir Réne Sehested og Shane Williams léku ólöglegir með BÍ/Bolungarvík gegn Grindavík í Lengjubikar karla, þann 23. febrúar síðastliðinn. Leikmennirnir eru skráðir í erlend félagslið.
Í samræmi við ofangreindar reglugerðir eru úrslit leiksins skráð 0-3 og BÍ/Bolungarvík er sektað um kr. 30.000.