A landslið kvenna - Hópurinn sem fer til Algarve
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur valið hópinn sem leikur á Algarvemótinu sem hefst miðvikudaginn 6. mars. Sigurður Ragnar velur 23 leikmenn til fararinnar og þar af er einn nýliði, Birna Kristjánsdóttir úr Breiðabliki.
Ísland leikur í B riðli og er fyrsti leikur liðsins er gegn Bandaríkjunum 6. mars. Svíar verða svo mótherjarnir þann 8. mars, á alþjóðlegum baráttudegi kvenna en lokaleikur Íslands í riðlinum er gegn Kína, 11. mars. Síðasti leikur liðsins verður svo leikur um sæti en þeir leikir fara fram 13. mars.
Þjóðirnar sem leik í A riðli eru: Danmörk, Japan, Noregur og Þýskaland. Efstu þjóðirnar í A og B riðli leika til úrslita í mótinu. Þá er einnig leikið í C riðli en þar leika: Mexíkó, Portúgal, Ungverjaland og Wales.