U19 karla - Jafntefli gegn Dönum
Strákarnir í U19 léku í dag fyrri vináttulandsleikinn gegn Dönum en leikið var í Farum í Danmörku. Lokatölur leiksins urðu 1 - 1 eftir að Íslendingar höfðu leitt í leikhléi.
Íslenska liðið komst yfir á 13. mínútu leiksins þegar gestgjafarnir skoruðu sjálfsmark og þannig stóðu leikar þegar gengið var til leikhlés. Staðan stóð óbreytt lengi vel en þegar um 6 mínútur voru eftir af leiknum þá náðu heimamenn að jafna metin og þar við sat. Leikurinn þótti jafn og úrslitin því líklega sanngjörn. Liðin mætast aftur í fimmtudaginn í öðrum vináttulandsleik sem fram fer á sama stað.