Úrskurður í máli Fjölnis gegn KR
Aga- og úrskurðarnefnd hefur úrskurðað í máli Fjölnis gegn KR í Reykjavíkurmóti meistaraflokks kvenna vegna ólöglegs skipaðs liðs. Leikurinn fór fram 20. janúar síðastliðinn og er Fjölni er dæmdur sigur í leiknum.
Í úrskurðarorðum segir: " Úrslitum í leik KR og Fjölnis í leik liðanna sem fram fór í Egishöll kl. 14.00, þann 20. janúar 2013 í m.fl. kvenna, Reykjavíkurmóti, er breytt og Fjölni dæmdur 0-3 sigur í leiknum. Kærði, KR, greiði kr. 5.000,- í sekt til KSÍ."