FB fékk Jafnréttisviðurkenningu KSÍ
Jafnréttisviðurkenningu KSÍ var afhent á 67. ársþingi KSÍ sem nú stendur yfir. Í þetta skiptið var Fjölbrautarskólinn í Breiðholti heiðraður fyrir verkefnið "Unified football" sem byggir á liðsskipan fatlaðra og ófatlaðra.
Fjölbraut í Breiðholti er fyrsti skólinn sem sendir lið til þátttöku í "unified" knattspyrnu á Íslandsleikum 2012 og fær viðurkenningu fyrir að innleiða þennan nýja valkost fyrir nemendur í skólanum.