Góð aðsókn á dómaranámskeið með Kristni Jakobssyni
Kristnn Jakobsson var í gær með dómaranámskeið fyrir alla starfandi dómara og voru 35 mættir á námskeiðið. Kristinn fór yfir hagnýt mál í dómgæslu sem og yfir sína reynslu í starfinu og svaraði hann fjölmörgum spurningum frá þátttakendum.
Kristinn gaf dómurum góð ráð til að bæta sig í dómgæslunni en í síðustu viku var haldið samskonar námskeið fyrir aðstoðardómara sem einnig var vel sótt.