U17 kvenna - Danskur sigur í fyrri leiknum
Stelpurnar í U17 töpuðu fyrri vináttulandsleik sínum gegn Dönum í dag en leikið var Kórnum. Lokatölur urðu 0 - 3 eftir að Danir höfðu leitt með tveimur mörkum í leikhléi.
Gestirnir voru sterkari aðilinn í leiknum og sigurinn sanngjarn. Danir komust yfir á 19. mínútu og bættu við öðru marki á 36. mínútu. Þriðja markið kom svo, eftir snaggaralega sókn, þegar um 8 mínútur lifðu leiks. Íslenska liðið átti þó sína spretti, sérstaklega í síðari hálfleik þar sem mun meira jafnræði var með liðunum heldur en í þeim fyrri.
Seinni vináttulandsleikurinn fer svo fram á þriðjudaginn, 29. janúar, og verður leikið í Akraneshöllinni kl. 15:00.
Myndir frá leiknum má sjá á Myndasíðu KSÍ en tengil á hana má finna hér að neðan.