U19 karla leikur vináttulandsleiki gegn Skotum og Dönum
Knattspyrnusamband Íslands hefur komist að samkomulagi við knattspyrnusambönd Danmerkur og Skotlands um að U19 karlalandslið þjóðanna leiki vináttulandsleiki síðar á þessu ári.
Tveir leikir verða leiknir við hvora þjóð og fara allir leikirnir fram ytra. Leikið verður við Dani í Farum, á heimavelli Nordsjælland, 19. og 21. febrúar. Leikirnir við Skota verða svo 3. og 5. september en eftir á að ákveða leikstaði í Skotlandi.