U17 kvenna - Tveir leikir framundan við Dani
Landsliðsþjálfararnir Ólafur Þór Guðbjörnsson og Úlfar Hinriksson hafa valið 25 leikmenn til að mæta Dönum í tveimur vináttulandsleikjum á næstu dögum. Fyrri leikurinn verður í Kórnum næstkomandi sunnudag, 27. janúar og hefst kl. 13:30. Sá síðari verður í Akraneshöllinni, þriðjudaginn 29. janúar og hefst kl. 15:00.