Ráðstefna um félagaskiptamál og greiðslur vegna félagaskipta
Dagana 2.-3. febrúar mun KSÍ standa fyrir ráðstefnu um félagaskiptamál og greiðslur vegna félagaskipta. Hingað til lands kemur Omar Ongaro sem er yfirmaður félagaskiptadeildar FIFA og mun hann flytja erindi um uppeldisbætur og samstöðubætur, auk þess að fjalla um veðmál og hagræðingu úrslita.
Ráðstefnan er opin öllum og aðgangur er ókeypis. Formenn og framkvæmdastjórar félaga eru þó sérstaklega hvattir til að mæta. Vinsamlegast boðið þátttöku með því að senda tölvupóst á dagur@ksi.is.
Ráðstefna um félagaskiptamál og greiðslur vegna félagaskipta
Haldin í fræðslusetri KSÍ (3. hæð) 2.-3. febrúar 2013
Dagskrá
Laugardagur 2. febrúar
- kl. 11:00 - Reglugerð KSÍ um félagaskipti, samninga og stöðu leikmanna og félaga - Þórir Hákonarson framkvæmdastjóri KSÍ
- kl. 12:00 - Hádegisverður í KSÍ
- kl. 13:00 - Uppeldisbætur (Training compensation) - Omar Ongaro FIFA
- kl. 14:30 - Samstöðubætur (Solidarity compensation) - Omar Ongaro FIFA
Áætlað að fundinum ljúki um kl. 16:00
Sunnudagur 3. febrúar
- kl. 13:00 - Veðmál og hagræðing úrslita (betting and match-fixing) - Omar Ongaro FIFA
- kl. 14:00 - Hætturnar á Íslandi - Þórir Hákonarson framkvæmdastjóri KSÍ og Birkir Sveinsson mótastjóri KSÍ
Áætlað að fundinum ljúki um kl. 15:00