U19 karla - Kristinn R. Jónsson áfram þjálfari
Kristinn Rúnar Jónsson hefur verið endurráðinn landsliðsþjálfari U19 karla en hann tók við því starfi í desember 2006. Nýr samningur við Kristin er til tveggja ára. Kristinn hefur víðtæka reynslu úr þjálfun og hefur m.a. þjálfað meistaraflokka karla hjá ÍBV og Fram.