Knattspyrnuþing 2013 - Fjöldi þingfulltrúa
67. ársþing KSÍ verður haldið á Hilton Nordica Hótel 9. febrúar nk. Sambandsaðilar eru beðnir um að kynna sér eftirfarandi upplýsingar:
1. Skuldir
Aðilar sem vanrækja uppgjör á gjöldum, sem greiða skal til KSÍ, missa rétt til þingsetu. Þeim félögum sem skulda KSÍ er bent á að hafa tafarlaust samband við Pálma Jónsson, fjármálastjóra KSÍ
2. Tillögur og málefni
Tillögur og málefni þau er sambandsaðilar óska eftir að tekin verði fyrir á þingi skulu berast stjórn KSÍ minnst mánuði fyrir þing eða í síðasta lagi miðvikudaginn 9. janúar nk.
3. Gisting
Hilton Nordica býður þingfulltrúum og þinggestum gistingu sem hér greinir:
Eins manns herbergi með morgunverði kr. 12.900.- pr. nótt
Tveggja manna herbergi með morgunverði kr. 14.900.- pr. nótt
Sambandsaðilar skulu sjálfir panta herbergi í síma 444-4000 eða á póstfang go@icehotels.is, þegar það er gert skal vísað til þess að það sé gert í tengslum við þingið.
4. Dagskrá
Þingið verður sett að morgni laugardaginn 9. febrúar og er gert ráð fyrir að því ljúki um kl. 16:00 sama dag. KSÍ býður þingfulltrúum til sameiginlegs kvöldverðar.
Nákvæm dagskrá verður send sambandsaðilum síðar.
4. Fjöldi fulltrúa – bráðabirgðaákvæði vegna nýrrar deildar
Hjálagður er listi yfir fjölda þingfulltrúa. Gerð var lagabreyting á síðasta ársþingi KSÍ þar sem fjölgað var um deild í karlaflokki og samþykkti stjórn KSÍ á fundi sínum þann 13. desember sl. bráðabirgðaákvæði þess efnis að þau félög sem hafa rétt til þátttöku í nýrri 3. deild karla á komandi leiktíð haldi réttindum um fulltrúafjölda á ársþingi 2013 í samræmi við d-lið 9. greinar laga KSÍ. Stjórn KSÍ mun leggja fram tillögu um lagabreytingu þessu til staðfestingar á komandi þingi.
Sambandsaðilar eru beðnir um að fara yfir listann og gera athugasemdir ef þörf krefur.
Nánari upplýsingar um þingið og tillögur verða sendar til sambandsaðila í janúar, hálfum mánuði fyrir þing.