Kristinn dæmir í Tékklandi
Kristinn Jakobsson mun dæma leik Viktoria Plzen frá Tékklandi og Atletico Madrid frá Spáni í Evrópudeild UEFA en leikið verður í Plzen á fimmtudaginn. Aðstoðardómarar verða Sigurður Óli Þorleifsson og Frosti Viðar Gunnarsson og aukaaðstoðardómarar þeir Þorvaldur Árnason og Gunnar Jarl Jónsson. Fjórði dómari verður Gunnar Sverrir Gunnarsson.
Leikurinn er í B-riðli keppninnar en þarna leika tvö efstu liðin í riðlinum og hafa þau þegar tryggt sér sæti í 32-liða úrslitum keppninnar.