Öruggur sigur á Andorra
Ísland bar sigur af Andorra í kvöld í vináttulandsleik sem leikinn var í Andorra. Loktaölur urðu 0 - 2 og komu mörkin í sínum hvorum hálfleiknum.
Íslendingar hófu leikinn af krafti og höfðu yfirhöndina allan leikinn. Sigurinn hefði hæglega getað verið stærri en tvö mörk dugðu. Fyrra markið kom á 10. mínútu leiksins þegar Hjörtur Logi Valgarðsson sendi inn á Jóhann Berg Guðmundsson sem lék á markvörð heimamanna og renndi boltanum í netið. Þannig var staðan í leikhléi þó svo að íslenska liðið hafi fengið nokkur tækifæri til að bæta við mörkum, ekki síst eftir innköst Arons Einars Gunnarssonar.
Gerðar voru fjórar breytingar í leikhléi en atvik leiksins má sjá með því að smella á leikskýrslutengilinn hér að neðan. Strákarnir héldu áfram að gera harða hríð að marki Andorra í síðari hálfleik og það bar árangur á 58. mínútu þegar Birkir Már Sævarsson renndi boltanum á Rúnar Már Sigurjónsson. Hann lék framhjá tveimur varnarmönnum áður en hann skoraði með góðu skoti í fjærhornið. Frábær byrjun á landsliðsferlinum hjá Rúnari sem þarna lék sinn fyrsta landsleik ásamt Jóni Daða Böðvarssyni, sem kom inná í síðari hálfleik. Mörkin urðu ekki fleiri þrátt fyrir fín færi, m.a. stangarskot frá Ólafi Inga Skúlasyni.
Sigurinn öruggari en tölurnar segja kannski til um og gott að enda landsliðsárið á sigri. Fylgst var með leiknum með textalýsingu á Facebooksíðu KSÍ.