Úrslitakeppni EM kvenna - Dregið í riðla í dag
Í dag verður dregið í riðla í úrslitakeppni EM kvenna en hún fer fram í Svíþjóð á næsta ári, nánar tiltekið 10. - 28. júní. Drátturinn fer fram í Gautaborg og hefst kl. 17:30 að íslenskum tíma. Bein útsending verður frá drættinum á RÚV og einnig er hægt að fylgjast með á heimasíðu UEFA.
Dregið verður í þrjá fjögurra liða riðla þar sem liðin eru flokkuð samkvæmt árangri í undanförnum 3 EM og HM keppnum.
Í efsta flokki eru Svíþjóð (A1), Þýskaland (B1) og Frakkland (C1). Í öðrum flokki eru England, Noregur og Ítalía sem verða dregin í sæti A2, B2 og C2. Í þriðja sæti eru síðan Danmörk, Finnland, Holland, Rússland, Spánn og Ísland og verða þessi liðin dregin í sæti A3, A4, B3, B4, C3 og C4
Úrslitakeppnin fer fram 10. - 28. júlí. Riðill A verður leikinn í Gautaborg og Halmstad, riðill B í Vaxjo og Kalmar og riðill C í Norrkoping og Linköping.
Átta liða úrslit verða leikinn í Halmstad, Vaxjo, Linkoping og Kalmar, undanúrslit í Gautaborg og Norrkoping.
Úrslitaleikurinn verður leikinn á hinum glænýja Solna Arena velli.