Ísland í riðli með Þýskalandi, Noregi og Hollandi
Í dag var dregið í riðla fyrir úrslitakeppni EM kvenna sem fram fer í Svíþjóð á næsta ári. Ísland mun leika í B riðli og leikur þar við Þýskaland, Noreg og Holland. Fyrsti leikur Íslands verður gegn Noregi í Kalmar, fimmtudaginn12. júlí.
Næstu mótherjar Íslendinga verða handhafar titilsins, Þjóðverjar, en leikið verður við þá sunnudaginn 14. júlí í Vaxjo. Lokaleikur Íslands í riðlinum verður svo gegn Hollandi í Våxjo, miðvikudaginn 17. júlí. Efstu tvær þjóðir hvers riðils fara áfram í 8 liða úrslit ásamt tveimur þjóðum með bestan árangur í þriðja sæti riðlanna.
Þegar Ísland lék í úrslitakeppninni í Finnlandi árið 2009, var riðillinn ærið keimlíkur en þar voru mótherjarnir Þýskaland, Noregur og Frakkland.
Ísland lék einmitt í riðli með Noregi í undankeppninni og unnu heimaleikinn, 3 - 1 en töpuðu í Noregi, 2 - 1. Holland lenti í öðru sæti í sínum riðli í undankeppninni, á eftir Englandi, en komst áfram með bestan árangur allra þjóða í öðru sæti. Þýskaland sýndi styrk sinn í undankeppninni með því að sigra í sínum riðli af öryggi. Unnu alla leiki fyrir utan jafntefli gegn Spáni og voru með hagstæða markatölu upp á 61 mark eftir leikina tíu. Það er því spennandi og krefjandi verkefni fyrir íslensku stelpurnar framundan.
Í A riðli leika:
- Svíþjóð
- Ítalía
- Danmörk
- Finnland
Í C riðli leika:
- Frakkland
- England
- Rússland
- Spánn