Karlalandsliðið í 96. sæti á FIFA-listanum
A landslið karla hækkar um eitt sæti milli mánaða á styrkleikalista FIFA og er í 96. sæti á nýútgefnum lista. Í upphafi árs var liðið í 104. sæti, fór svo niður í það 131., en hefur hækkað sig á ný og er nú á haustmánuðum í fyrsta sinn síðan í lok árs 2009 á meðal 100 efstu þjóða. Ef aðeins Evrópuþjóðir eru teknar með í reikninginn er Ísland í 40. sæti.
Ísland á styrkleikalista FIFA fyrir karlalandslið
Spánverjar eru sem fyrr í efsta sætinu og Þjóðverjar koma næstir. Rússar og Króatar færast inn á topp 10 á kostnað Úrúgvæ og Grikklands. Ítalir hækka sig um þrjú sæti innan topp 10.