Kristinn dæmir í Tyrklandi
Kristinn Jakobsson mun dæma leik Fenerbache frá Tyrklandi og AEL Limassol frá Kýpur í Evrópudeild UEFA en leikið verður í Istanbul á fimmtudaginn. Þessi félög leika í C riðli keppninnar og er tyrkneska liðið á toppi riðilsins.
Aðstoðardómarar Kristins verða þeir Jóhann Gunnar Guðmundsson og Gunnar Sverrir Gunnarsson og aukaaðstoðardómarar þeir Þóroddur Hjaltalín og Erlendur Eiríksson. Fjórði dómari verður Sigurður Óli Þorleifsson.