A karla - Hópurinn valinn fyrir vináttulandsleik gegn Andorra
Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari, hefur valið hóp fyrir vináttulandsleik gegn Andorra sem fram fer ytra, 14. nóvember næstkomandi. Einn leikmaður í hópnum hefur ekki leikið A landsleik, Rúnar Már Sigurjónsson úr Val.
Þetta er í fimmta skiptið sem þessar þjóðir mætast hjá A landsliði karla en Íslendingar hafa unnið allar fjórar viðureignirnar til þessa.