U19 karla - Tap gegn Georgíu
Strákarnir í U19 töpuðu í dag gegn Georgíu í undankeppni EM en leikið var í Króatíu. Lokatölur urðu 2 - 0 fyrir Georgíumenn. Íslendingar sitja því eftir en Georgíumenn fara áfram í milliriðla, ásamt Króatíu sem lögðu Asera 7 - 1.
Nokkur vonbrigði hjá íslenska liðinu, sem hefði dugað jafntefli til að tryggja sig áfram í milliriðla. Framtíðin er þó björt hjá liðinu en stór hluti hópsins er á yngra ári og koma því tvíefldir leik leiks í næstu undankeppni.