U19 karla - Byrjunarliðið gegn Georgíu
Strákarnir í U19 leika í dag lokaleik sinn í undankeppni EM en leikið er í Króatíu. Leikið verður í dag gegn Georgíu og hefst leikurinn kl. 13:00 að íslenskum tíma. Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn.
Byrjunarliðið:
Markvörður; Rúnar Alex Rúnarsson
Vinstri bakvörður; Ósvald Jarl Traustason
Hægri bakvörður; Adam Arnarson
Miðverðir; Hjörtur Hermannsson fyrirliði og Orri Sigurður Ómarsson
Miðjumenn; Óliver Sigurjónsson, Gunnar Þorsteinsson og Aron Þrándarson
Hægri kantur; Daði Bergsson
Vinstri kantur; Arnar Aðalgeirsson
Framherji; Árni Vilhjálmsson
Með jafntefli tryggir íslenska liðið sér sæti í milliriðlum en allar þjóðirnar eiga möguleika á því að komast áfram fyrir síðustu umferðina. Króatía og Aserbaídsjan mætast á sama tíma en hægt er að fylgjast með gangi mála í báðum þessum leikjum með textalýsingu á heimasíðu UEFA.