Ný leyfisreglugerð sem tekur gildi 1. nóvember 2012
Stjórn KSÍ samþykkti á fundi sínum þann 25. október 2012, með fyrirvara um samþykki UEFA, leyfisreglugerð KSÍ sem tekur gildi 1. nóvember 2012.
Reglugerðina má finna hér á heimasíðu KSÍ, bæði á íslensku og ensku.
Rétt er að vekja sérstaka athygli á breytingum í reglugerðinni er snúa að fjárhagslegri háttvísi félaga. Í reglugerðinni nú eru ákvæði um jákvæða eiginfjárstöðu og hámarksskuldabyrði en þau ákvæði taka gildi við upphaf leyfisferlis fyrir árið 2014.
Aðlögun félaga að þessum ákvæðum (greinar 54 og 55 í leyfisreglugerðinni) er til ársins 2017 og verður síðar í haust boðað til kynningar á þessum ákvæðum með aðildarfélögum.