U19 karla - Leikið við Aserbaídsjan í dag
Strákarnir í U19 hefja í dag leik í undankeppni EM en leikið er í Króatíu. Fyrsti leikur Íslands er gegn Aserbaídsjan og hefst hann kl. 13:30 að íslenskum tíma. Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið.
Minnt er á að hægt er að fylgjast með textalýsingu af leiknum á heimasíðu UEFA, http://www.uefa.com/.
Markvörður; Rúnar Alex Rúnarsson
Vinstri bakvörður; Ósvald Jarl Traustason
Hægri bakvörður; Adam Örn Arnarson
Miðverðir; Hjörtur Hermannsson og Orri Sigurður Ómarsson
Miðjumenn; Óliver Sigurjónsson, Gunnar Þorsteinsson og Aron Þrándarson
Hægri kantur; Ragnar Bragi Sveinson
Vinstri kantur; Arnar Aðalgeirsson
Framherji; Árni Vilhjálmsson