Afreksstyrkur til kvennalandsliðsins
Stjórn KSÍ hefur ákveðið að veita íslenska kvennalandsliðinu 10 milljón króna afreksstyrk vegna glæsilegs árangurs í undankeppni EM. Sem kunnugt er tryggði liðið sér sæti í úrslitakeppninni í Svíþjóð sem fram fer 10. – 28. júlí á næsta ári.
Dregið verður í riðla 9. nóvember næstkomandi en úrslitakeppnina skipa 12 þjóðir. Þær eru:
- Ísland
- Svíþjóð
- Þýskaland
- Ítalía
- Noregur
- Finnland
- Holland
- Rússland
- Spánn
- England
- Danmörk
- Frakkland