U19 kvenna - Danskur sigur í síðasta leik
Stelpurnar í U19 töpuðu í dag gegn Dönum í síðasta leik liðsins í undankeppni EM en leikið var í Danmörku. Lokatölur urðu 3 - 1 fyrir heimastúlkur eftir að þær höfðu leitt, 2 - 0, í leikhléi. Báðar þjóðirnar höfðu fyrir leikinn tryggt sér sæti í milliriðlum sem fram fara á næsta ári.
Danir fengu sannkallaða óskabyrjun og skoruðu strax á fyrstu mínútu eftir hornspyrnu. Á fjórðu mínútu bættu þær marki við og leiddu þannig í leikhléi. Eftir aðeins þriggja mínútna leik í síðari hálfleik minnkaði Elín Mette Jensen muninn en Danir svöruðu aðeins mínútu síðar. Það urðu svo lokatölur leiksins.
Danir urðu því í neðsta sæti riðilsins og Íslendingar í því öðru og þessar þjóðir því komnar áfram í milliriðla.