Ísland mætir Úkraínu - Mætum tímanlega á völlinn
Það styttist í leik Íslands og Úkraínu sem hefst á Laugardalsvelli kl. 18:30. Ljóst er að aðsókn verður góð enda sæti í úrslitakeppninni í húfi. Fólk er hvatt til að mæta tímanlega á völlinn til að forðast biðraðir við innganginn en völlurinn opnar kl. 17:40. Miðasala er í gangi á midi.is og á Laugardalsvelli fram að leik.
Minnt er á að bílastæði eru víðsvegar um Laugardalinn, þó þau séu ekki beint fyrir utan Laugardalsvöllinn. Vert er að vekja athygli á tilmælum Lögreglunnar að lagt sé löglega í Laugardalnum en hér á myndinni að neðan má sjá hvar bílastæði eru í dalnum.