Byrjunarlið Íslands gegn Úkraínu
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Úkraínu í umspilsleik fyrir úrslitakeppni EM í Svíþjóð. Sigurður Ragnar stillir upp sama byrjunarliði og í fyrri leiknum og það sama má segja um mótherjana.
Enn eru til miðar og eru allir hvattir til þess að drífa sig í Laugardalinn fagra og hvetja stelpurnar til sigurs.