Stelpurnar æfðu á keppnisvellinum í dag
Kvennalandsliðið æfði á keppnisvellinum í Sevastopol í dag en þetta var lokaæfing liðsins fyrir leikinn mikilvæga gegn Úkraínu á morgun. Leikurinn hefst kl. 13:00 að íslenskum tíma og er hægt að fylgjast með leiknum á textalýsingu af heimasíðu UEFA.
Aðstæður í Sevastopol eru mjög góðar og fór æfingin í dag fram í 17 stiga hita og logni en skýjað var og er búist við svipuðu veðri á morgun þegar leikurinn fer fram. Allir leikmenn hópsins eru heilir og tóku fullan þátt í æfingunni í dag.
Seinni leikurinn fer svo fram á Laugardalsvelli, fimmtudaginn 25. október kl. 18:30 og er hægt að lofa þar hörkuleik þó ekki sé hægt að lofa 17 stiga hita.