A kvenna - Hópurinn sem mætir Úkraínu
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur valið hópinn sem mætir Úkraínu í tveimur umspilsleikjum síðar í þessum mánuði. Leikið verður ytra 20. október og hér heima, á Laugardalsvelli, fimmtudaginn 25. október.
Sigurvegari viðureignanna tryggi sér sæti í úrslitakeppni EM í Svíþjóð 2013 og þarf því ekki að fjölyrða um mikilvægi þessara leikja.
Sigurður Ragnar hefur valið 18 leikmenn í þessa leiki og má sjá hópinn hér að neðan.