U17 karla - Tveggja marka tap gegn Noregi
Strákarnir í U17 töpuðu í dag gegn jafnöldrum sínum frá Noregi en leikurinn var liður í undankeppni EM og fór fram á Möltu. Lokatölur urðu 2 - 0 fyrir Norðmenn sem leiddu með einu marki í leikhléi.
Þar með er ljóst að íslenska liðið kemst ekki áfram í milliriðla en strákarnir töpuðu sínum fyrsta leik gegn Portúgal á laugardaginn. Síðasti leikur Íslands í riðlinum er gegn heimamönnum í Möltu sem fram fer á fimmtudaginn.