Vilhjálmur og Halldór dæmdu í Svíþjóð
Vilhjálmur Alvar Þórarinsson og Halldór Breiðfjörð Jóhannsson dæmdu um helgina leik Ljungskile og Umeå í næst efstu deild í Svíþjóð. Vilhjálmur var dómari leiksins og Halldór var annar aðstoðardómara.
Heimaliðið fór með sigur af hómi, 2 - 0, en þetta verkefni er hluti af norrænum dómaraskiptum á milli knattspyrnusambanda á Norðurlöndum.