Bibiana Steinhaus dæmir Noregur - Ísland
Það verður hin þýska Bibiana Steinhaus sem dæmir leik Noregs og Íslands í undankeppni EM á Ullevål, miðvikudaginn 19. september. Bibiana er ein af reyndustu dómurum sem völ er á og dæmdi t.a.m. úrslitaleik Bandaríkjanna og Japans á HM 2011 í Þýskalandi.
Bibiana hefur einnig margoft komið við sögu íslenska kvennalandsliðsins og var hún t.d. við stjórnvölinn þegar Ísland og Bandaríkin mættust í úrslitaleik Algarve Cup árið 2011. Hennar fyrsti landsleikur var leikur Íslands og Svíþjóðar árið 2005.