Spurningakönnun á kvennalandsleik 15. september
Á viðureign kvennalandsliða Íslands og Norður-Írlands á Laugardalsvelli þann 15. september næstkomandi verður unnin spurningakönnun sem er hluti af átaki UEFA í markaðsmálum kvennaknattspyrnu og snýr að Pepsi-deild kvenna. Markmiðið er að greina ýmsa þætti varðandi áhorfendur og aðsókn að leikjum deildarinnar, m.a. hvaða áhorfendur mæta á leiki Pepsi-deildar kvenna og hvers vegna aðrir mæta ekki á leikina.
Á leiknum verða sjálfboðaliðar á vegum KSÍ (sjá mynd hér að neðan) sem gefa sig á tal við vallargesti og óska eftir þátttöku, og er fólk hvatt til að taka vel við þeirri beiðni. Sjálfboðaliðarnir verða á ferli fyrir leik, á meðan á leik stendur og í hálfleik. Spurningakönnunin telur alls 8 spurningar og tekur um það bil 2 mínútur. Þátttaka vallargesta í þessu mikilvæga verkefni er afar vel þegin og getur skilað miklu til kvennaknattspyrnunnar.
Fyrri frétt um verkefnið: http://www.ksi.is/fraedsla/nr/10227
Takið vel á móti fólki sem er í blárri KSÍ-peysu með möppu í hönd, eins og þessi hér að neðan!