• fim. 13. sep. 2012
  • Landslið

Ísland - Norður Írland - Frítt inn fyrir ellilífeyrisþega og öryrkja

Við erum öll í íslenska landsliðinu!
ahorfendur-10

Frítt er inn fyrir ellilífeyrisþega og öryrkja á leik Íslands og Norður Írlands í undankeppni EM kvenna.  Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli, laugardaginn 15. september og hefst kl 16:15.  Hægt er að framvísa viðeigandi skírteinum við innganginn og þarf því ekki að sækja miða áður á skrifstofu KSÍ.