A kvenna - Hópurinn hjá Norður Írum
Norður Írar undirbúa sig nú af kappi fyrir leikinn gegn Íslendingum á Laugardalsvelli, laugardaginn 15. september kl. 16:15, í undankeppni EM 2013 kvenna. Landsliðsþjálfarinn Alfie Wylie hefur tilkynnt 18 manna hóp sem mætir Íslendingum og þar er m.a. að finna þrjá leikmenn sem léku hér á landi í sumar. Þetta eru þær Julie Nelson sem lék með ÍBV, markvörðinn Emmu Higgins sem lék með KR og Sarah McFadden sem lék með FH.
Ennfremur eru í hópnum tveir leikmenn sem leikið hafa hér á landi áður með íslenskum félagsliðum, þær Ashley Hutton og Rachel Furness
Markverðir:
Emma Higgins - KR
Krystal Parker - Blackburn Rovers
Útileikmenn:
Alex Hurst - Newry City Ladies
Ashley Hutton - Linfield Ladies
Julie Nelson – ÍBV
Demi Vance - Glentoran Belfast United
Kelly Bailie - Glentoran Belfast United
Nadene Caldwell - Glentoran Belfast United
Sarah Mc Fadden - Sunderland
Rachel Furness - Sunderland
Aoife Lennon - Newry City Ladies
Simone Magill - Mid Ulster Ladies
Caragh Milligan - Glentoran Belfast United
Laura Nicholas - YMCA Ladies
Alison Smith - Crusaders Newtownabbey Strikers
Clare Carson - Crusaders Newtownabbey Strikers
Alana McShane - Sion Swifts
Rebecca Holloway - Bristol Academy