U19 karla - Annar sigur gegn Eistum
Strákarnir i U19 lögðu Eistlendinga í dag í öðrum vináttulandsleik liðanna á þremur dögum. Leikið var í Grindavík og urðu lokatölur 3 - 0 eftir að staðan hafði verið 2 - 0 í leikhléi. Fyrri leiknum, sem fram fór á Víkingsvelli síðastliðinn föstudag, lauk einni með sigri Íslands, 4 - 0.
Mörkin í dag skoruðu þeir Orri Sigurður Ómarsson, Gunnlaugur Fannar Guðmundsson og Gunnar Þorsteinsson.
Þessir vináttulandsleikir voru liður í undirbúningi liðsins fyrir undankeppni EM 2013 en riðill Íslands verður leikinn í Króatíu dagana 26. - 31. október. Mótherjar Íslendinga þar eru, ásamt heimamönnum, Georgía og Aserbaídsjan.