U19 karla - Öruggur sigur Íslendinga
Strákarnir í U19 liðinu unnu í dag öruggan sigur á jafnöldrum sínum frá Eistlandi. Lokatölur urðu 4 - 0 fyrir Ísland eftir að staðan í leikhléi hafði verið 1 - 0. Sigurinn var nokkuð öruggur eins og tölurnar gefa til kynna en þjóðirnar mætast aftur í Grindavík á sunnudaginn kl. 16:00.
Árni Vilhjámsson kom Íslendingum yfir á 24. mínútu en það var eina mark fyrri hálfleiks. Íslendingar byrjuðu svo síðari hálfleikinn af krafti og eftir 12 mínútna leik var staðan orðin 3 - 0. Fyrst skoraði Gunnar Þorsteinsson og svo var Árni Vilhjálmsson aftur að verki. Aron Elís Þrándarson innsiglaði svo sigurinn með marki á 89. mínútu og þar við sat.