Mætum tímanlega á völlinn
Eins og öllum er kunnugt er leikur Íslands og Noregs í undankeppni HM í kvöld kl. 18:45 á Laugardalsvelli. Miðasala á leikinn gengur mjög vel og má búast við þéttsetnum velli í kvöld. Áhorfendur eru hvattir til þess að mæta tímanlega á völlinn til að forðast langar biðraðir. Völlurinn opnar klukkutíma fyrir leik, kl. 17:45.
Miðasala á Laugardalsvelli opnar kl. 12:00 og eru þeir sem enn eiga eftir að fá sér miða, hvattir til þess að koma tímanlega til að tryggja sér miða. Einnig er hægt að kaupa miða í gegnum miðasölukerfi hjá http://www.midi.is/.