Styrkleikalisti FIFA - Karlalandsliðið upp um 12 sæti
Íslenska karlalandsliðið er í 118. sæti í nýjum styrkleikalista FIFA sem gefinn var út í morgun. Liðið fer upp um 12 sæti frá síðasta lista en Spánverjar eru sem fyrr í efsta sæti listans.
Af mótherjum okkar í riðlakeppni HM 2014 eru Sviss í 20. sæti, Slóvenía í 24. sæti og mótherjar okkar á föstudaginn, Norðmenn, í 34. sæti. Albanía er í 84. sæti og Kýpur í 135. sæti.