Miðasala á Ísland - Noregur gengur vel
Miðasala á viðureign Íslands og Noregs í undankeppni HM 2014 gengur vel. Fólk er því hvatt til að tryggja sér miða tímanlega og nýta þann afslátt sem miðakaup á netinu gefa. Sérstaklega er vakin athygli á því að kaup á miðum í hólf A og I í forsölu gefa kr. 1.000 í afslátt frá fullu verði. Öll forsala aðgöngumiða fer fram á midi.is.
Ísland - Noregur 7. september
Svæði | Leikdagur (fullt verð) | Forsöluverð |
Svæði I (rautt) | 4.500 kr | 4.000 kr (500 kr afsláttur) |
Svæði II (blátt) | 3.500 kr | 3.000 kr (500 kr afsláttur) |
Svæði III (grænt) | 2.500 kr | 1.500 kr (1.000 kr afsláttur) |
50% afsláttur er fyrir börn 16 ára og yngri af leikdagsverði, þannig að barnamiði á svæði I kostar kr 2.250, barnamiði á svæði II kostar kr. 1.750 og á svæði III kr. 1.250.
Beinn hlekkur á forsöluna á midi.is - http://midi.is/ithrottir/5/90/