U17 landsliðshópur kvenna til Slóveníu
Úlfar Hinriksson, þjálfari U17 landsliðs kvenna, hefur valið hóp 18 leikmanna fyrir undankeppni EM 2013. Riðill Íslands fer fram í Slóveníu í byrjun september og er Ísland í riðli með Slóveníu, Tékklandi og Eistlandi. Leikmennirnir í hópnum koma frá 12 félögum víðs vegar af landinu, en Breiðablik á fjóra leikmenn og FH þrjá.
Úlfar Hinriksson tók við U17 liði kvenna á þessu ári af Þorláki Árnasyni.