Þorvaldur dæmir í efstu deild í Noregi - Norskur dómari á Kópavogsvelli
Þorvaldur Árnason mun dæma leik Hönefoss og Tromsö í efstu deild norsku deildarinnar og fer leikurinn fram sunnudaginn 26. ágúst. Þorvaldi til aðstoðar verða þeir Sigurður Óli Þorleifsson og Gylfi Már Sigurðsson.
Sama sunnudag munu svo norskir dómarar dæma hér í efstu deild en þá mun Ola Hobbar Nilsen dæma leik Breiðabliks og Selfoss á Kópavogsvelli. Honum til aðstoðar verða þeir Tom Harald Grönnevik og Joakom Knapstad.
Knattspyrnusambönd Noregs og Íslands hafa þarna bætt enn við þau samskipti sem hafa verið í norrænum dómaramálum. Eftir því sem næst verður komist er þetta í fyrsta skiptið sem erlendur dómari dæmir í efstu deild í Noregi.