Gunnar Jarl dæmir úrslitaleik Borgunarbikars kvenna
Það verður Gunnar Jarl Jónsson sem dæmir úrslitaleik Vals og Stjörnunnar í Borgunarbikar kvenna. Leikið verður á Laugardalsvelli og hefst leikurinn kl. 16:00, laugardaginn 25. ágúst. Honum til aðstoðar verða Halldór Breiðfjörð Jóhannsson og Jóhann Óskar Þórólfsson og fjórði dómari verður Rúna Kristín Stefánsdóttir.
Miðaverð (ónúmeruð sæti)
17 ára og eldri: kr. 1000
16 ára og yngri: ókeypis aðgangur
Netsala á http://www.midi.is/ - Miðasala við Laugardalsvöll á leikdegi frá kl. 12:00