Norræn dómaraskipti - Dómarar frá Finnlandi dæma í 1. deild karla
Eins og undanfarin ár hafa knattspyrnusambönd Norðulandanna haldið úti verkefni sem miðast við dómaraskipti á milli landanna. Á morgun, þriðjudaginn 21. ágúst, munu dómarar frá Finnlandi starfa á leik Víkinga frá Reykjavík og Tindastóls.
Dómarinn heitir Mikko Lehtola og annar aðstoðardómari hans er Olli Jantunen. Hinn aðstoðardómarinn er hinsvegar íslenskur og heitir Birkir Sigurðarson.
Síðar í mánuðinum munum við svo fá heimsókn frá dómurum frá Færeyjum og Noregi sem einnig munu starfa á leikjum hér á landi.