Miðasala í gangi á leik Íslands og Noregs - Norðmenn fjölmenna
Ísland og Noregur mætast á Laugardalsvellinum föstudaginn 7. september næstkomandi í fyrsta leik liðanna í undankeppni HM 2014. Leikurinn hefst kl. 18:45 og má búast við mikilli stemmningu eins og venjan er þegar þessar frændþjóðir mætast.
Mikil áhugi er á leiknum í Noregi en Norðmenn hafa rétt á 1.000 miðum á leikinn. Norska knattspyrnusambandið hefur þegar selt 700 miða á þennan leik og ljóst að gestirnir verða áberandi á Laugardalsvellinum 7. september næstkomandi.
Miðasalan er í fullum gangi á midi.is og er fólk hvatt til að tryggja sér miða sem fyrst. Rétt er að geta þess að stuðningsmannahópurinn Tólfan verður staðsett í O-hólfi, sem er í miðri Austurstúku.