Strákarnir ætla sér sigur
A landslið karla mætir Færeyingum í vináttulandsleik á Laugardalsvelli á miðvikudag kl. 19:45. Þetta er síðasti æfingaleikurinn áður en undankeppni HM 2014 hefst í september, og jafnframt fyrsti heimaleikurinn undir stjórn Lars Lagerbäck. Ísland teflir fram sterku liði og ljóst að menn vilja sanna sig fyrir þjálfaranum.
Íslenska liðið hefur æft tvisvar á Laugardalsvellinum og er stemmningin í hópnum góð. Liðið hefur leikið fjórum sinnum undir stjórn Lars Lagerbäck, allt útileikir, og strákarnir eru allir staðráðnir í að landa fyrsta sigrinum.