Dómarar frá Lúxemborg
Dómararnir á vináttulandsleik Íslands og Færeyja á Laugardalsvellinum á miðvikudag koma frá Lúxemborg. Maðurinn með flautuna heitir Laurent Kopriwa, sem er 29 ára gamall. Kopriwa komst í hóp FIFA-dómara á þessu ári og starfar sem endurskoðandi.
Aðstoðardómararnir eru bræðurnir Antonio og Claudio De Carolis. Fjórði dómarinn er hins vegar íslenskur og heitir Gunnar Jarl Jónsson.
Leikurinn er sem fyrr segir á miðvikudagskvöld og hefst kl. 19:45.