Andri dæmdi í UEFA Futsal Cup
Andri Vigfússon, sem er FIFA Futsal dómari, var við störf í einum riðlanna í UEFA Futsal Cup fyrr í mánuðinum. UEFA Futsal Cup er Evrópumót félagsliða í Futsal-innanhússknattspyrnu.
Andri dæmdi þrjá leiki í mótinu og þar á meðal lokaleik riðilsins, úrslitaleik um hvort liðið kæmist upp úr riðlinum.